SPITAL sigraði í keppni um hönnun á nýjum Landspítala
Hönnunarteymið SPITAL varð hlutskarpast í samkeppni um byggingu nýs Landspítala og húsnæðis fyrir heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands. Tilkynnt var um þetta við athöfn á Háskólatorgi 9. júlí síðastliðinn.
Fimm hönnunarteymi tóku þátt í samkeppni um frumhönnun nýja spítalans en þau skiluðu 10. júní gögnum til Ríkiskaupa. Að því loknu fór níu manna dómefnd, auk fjölmargra óháðra ráðgjafa, yfir samkeppnistillögurnar.
Ein af meginforsendum hönnunarsamkeppninnar var að flytja starfsemi Landspítala í Fossvogi að Hringbraut og ljúka þannig sameiningu stóru spítalanna á höfuðborgarsvæðinu. Samkeppnin var tvíþætt og tók annars vegar til tillögu að áfangaskiptu skipulagi Hringbrautarlóðarinnar og hins vegar tillögu að frumhönnun 1. áfanga verkefnisins, sem samanstendur af spítalastarfsemi í 66.000 m² nýbyggingu og háskólastarfsemi í allt að 10.000 m² nýbyggingu.
Stakkur sniðinn að vexti
„Nú hillir undir að framkvæmdir hefjist við eitt metnaðarfyllsta verkefni heilbrigðiskerfisins um langa hríð,“ sagði Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra við athöfnina. Bygging nýs Landspítala hafi verið í burðarliðnum um árabil og áformin tekið miklum breytingum á þeim tíma. Mestu muni þar um efnahagshrunið haustið 2008 en í kjölfarið hafi þurft að endurskoða öll fyrri byggingaráform.
„Fyrir vikið er sú hugmynd sem hér er kynnt talsvert smærri í sniðum og ekki eins ríkmannleg og lagt var upp með á tímum ofþenslu. Stakkur hefur verið sniðinn eftir vexti,“ sagði ráðherra.
Í SPITAL teyminu eru ASK arkitektar, Bjarni Snæbjörnsson arkitekt, Kanon arkitektar, Medplan, Teiknistofan Tröð, Landark, Efla verkfræðistofa, Lagnatækni og Norconsult.
Í umsögn dómnefndar er vinningstillögunni lýst sem sterkri hugmynd og höfundar nái vel því markmiði sínu að skapa „bæjarsamfélag sem myndar ramma um þverfaglegt samstarf ólíkra greina”.
Hönnunarsamkeppnin er síðasta verk verkefnisstjórnar um nýjan Landspítala því um miðjan júní 2010 samþykkti Alþingi lög um stofnun opinbers hlutafélags sem standa mun að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Félagið, sem er að taka til starfa, fær lokaskýrslu verkefnisstjórnar þar sem m.a. er lagt til að samið verði við SPITAL um forhönnun bygginga og skipulagsmál en forhönnun og útboðsgögn vegna framkvæmda eiga að liggja fyrir vorið 2011. Gert er ráð fyrir alútboði og að ríkið taki bygginguna á langtímaleigu til allt að 40 ára þegar byggingaverktaki hefur lokið umsömdu verki.
Samkvæmt áætlunum verkefnisstjórnar, sem fékk heimild heilbrigðisráðherra til að vinna verkefnið áfram í framhaldi af viljayfirlýsingu við lífeyrissjóðina í nóvember 2009, ættu jarðvegsframkvæmdir að geta hafist sumarið 2011.
Vinningstillaga SPITAL sem og hinar tillögurnar fjórar í hönnunarsamkeppninni verða almenningi til sýnis á Háskólatorgi fram eftir ágústmánuði.
Upplýsingar um keppnistillögurnar, niðurstöðu dómnefndar og vinningstillöguna má finna á vef nýja háskólasjúkrahússins.
Hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð – niðurstaða dómnefndar – verðlaunaafhending
Hönnunarsamkeppni um hönnun hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð var auglýst í mars og var skiladagur tillagna 7. júní 2010.
Verðlaunaafhending vegna hönnunarsamkeppninnar fer fram kl. 17.00, föstudaginn 9. júlí nk., í kirkju- og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð að Dalbraut 2.
Sýning á öllum samkeppnistillögum verður haldin í menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð frá sama tíma. Opnunartími sýningar verður tilkynntur næstu daga á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is, Fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is, Framkvæmdasýslu ríkisins www.fsr.is og Arkitektafélags Íslands www.ai.is.
Stefnt er að rýnifundi með dómnefnd og sýningu á samkeppnistillögunum í Reykjavík upp úr miðjum ágúst. Tilkynning þar að lútandi verður sett á áðurgreinda vefi síðar.
Virðingarfyllst
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
Fjarðabyggð
ARKITEKTÚR ÚTSKRIFTARVERK
Sjö arkitektar sem hafa nýlega lokið framhaldsnámi í byggingarlist erlendis, opna sýningu á útskriftarverkefnum sínum föstudaginn 25. júní, kl. 20.00, að Skúlagötu 28 (gamla Frón).
Hópurinn á það sameiginlegt að hafa stundað grunnnám í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Þau útskrifuðust þaðan 2006 í öðrum útskriftarárgangi í faginu.
Sýningin stendur til þriðjudags 29. júní. Laugardag og sunnudag verður sýningin opin klukkan 11 – 18, mánudag og þriðjudag klukkan 17 – 21.
Þátttakendur í sýningunni eru :
Arnhildur Pálmadóttir (IaaC, Barcelona),
Bergur Finnbogason (London Metropolitan University),
BrynhildurGuðlaugsdóttir (IaaC, Barcelona),
Hlín Finnsdóttir (Kingston University, London),
Garðar Snæbjörnsson (London Metropolitan University),
Jóhann Einar Jónsson (TKK, Helsinki) og
Sóley Lilja Brynjarsdóttir (EKA, Tallinn).
KRADSVERK / fyrirlestur / 27.maí
KRADS arkitektúr er með þeim yngri, en jafnframt ein af áhugaverðustu arkitektastofum hérlendis. Stofan er stofnuð af þeim Kristjáni Eggertssyni og Kristjáni Erni Kjartanssyni auk Mads Bay Möller, og síðan hefur Kristoffer J. Beilman bæst við hópinn. KRADS er með útibú beggja vegna hafsins – á Íslandi og í Danmörku – og fást við vítt svið verkefna, allt frá borgarskipulagi og hefðbundnum byggingarverkum til margvíslegra tilraunaverkefna og þróunarstarfs og mikil áhersla lögð á skapandi og ferskar lausnir sem vísa fram í tímann.
Af nýjustu verkefnum þeirra má meðal annars nefna verslunarmiðstöðina Kauptún í Garðabæ, 2. verðlaun í samkeppni um framhaldsskóla í Mosfellsbæ og listsmiðju arkitektanema í Listaháskóla Íslands þar sem LEGO kubbar voru byggingarefni.
Á fimmtudagskvöldið 27. maí munu þeir Kristján og Kristján flytja fyrirlestur og segja frá verkefnum og nálgun stofunnar í máli og myndum, þeirra á meðal lóðréttri einbýlishúsabyggð, fljúgandi drive-through veitingastað, 50 hæða turn í formi indíánatjalds og gildi þess að leika sér með LEGO!
Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur, fimmtudag 27. maí kl. 20:00. Ókeypis er inn og allir velkomnir.
FÉLAGIÐ – FRÁ OPNUN Í HÖFÐATORGI
FÉLAGIÐ var formlega opnað að kvöldi 18. mars að viðstöddu fjölmenni. FÉLAGIÐ hafði fengið til afnota jarðhæð turnsins á Höfðatorgi, þar sem opnuð var sameiginleg miðstöð og samstarfsvettvangur félaga í Arkitektafélagi Íslands, Félagi húsgagna- og innanhússarkitekta og Félagi íslenskra landslagsarkitekta auk nemenda í Listaháskóla Íslands. Þar var unnið þverfaglega að sameiginlegum viðburði á Hönnunarmars. Með nánu samstarfi hafa fagfélög byggingalistar sýnt það í verki að gera má svo miklu meira og betur ef laggst er á eitt og unnið saman.
Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að Hönnunarmars og hefur yfirumsjón með hátíðinni. Eitt af markmiðum Hönnunarmiðstöðvar, sem var stofnuð fyrir tveimur árum, er að efla samvinnu milli félaga í hönnunargeiranum og jafnvel koma á breiðari tengingu milli félaga sem alla jafna vinna ekki saman.
Viðburðir á Hönnunarmars teygðu anga sína víða. Miðstöð FÉLAGISINS var í Höfðatorgi og í Kaaber húsinu voru fatahönnuðir með sýningu. Laugavegurinn og miðbærinn voru iðandi af lífi og finna mátti viðburði um allt höfuðborgarsvæðið og jafnvel norður á Akureyri.
FÉLAGIÐ stóð fyrir metnaðarfullri dagskrá á Hönnunarmars. Meðal viðburða var sýning á líkönum, sem var komið fyrir í hinum ýmsu verslunum á Laugaveginum. Landslagsarkitektar voru með viðburðinn FÍLAR þú miðbæinn? Þar var staðan tekin á miðbænum og stöðumælum breytt í blómainnsetingar.
Laugardagskvöldið var sýnd fyrir fullu húsi Rússneska kvikmyndin “Man with the moviecamera” frá árinu 1929. Á undan sýningunni hélt Ríkharður H. Friðriksson tónskáld fyrirlestur um tengsl tónlistar og arkitektúrs og Matthew Collings flutti tónlist á meðan sýningin stóð yfir.
Farnar voru tvær skoðunarferðir með rútu frá miðstöð FÉLAGSINS í Höfðatorgi. Annarsvegar var skoðaður fjölbreyttur innanhússarkitekúr undir leiðsögn Ivu Rutar Viðarsdóttur innanhússarkitekt og hinsvegar var óvissuferð um arkitektúr borgarinnar undir leiðsögn Gunnars Arnar Sigurðssonar arkitekts. Einnig voru nokkrar arkitektastofur með opin hús á laugardeginum.
Fyrirlestrahald var mikilvægur þáttur í dagskrá FÉLAGSINS. Haldnir voru13 örfyrirlestrar og 6 fyrirlestrar.
Skyggnur sem sýndu verkefni arkitekta, innanhússarkitekta og landslagsarkitekta rúlluðu á tjaldi í kaffistofunni allan tímann meðan FÉLAGIÐ var opið á Hönnunarmars.
Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar opnaði sýningarnar M3, 10+ og Reykjavík Rewind sem eru afrakstur FÉLAGSINS.
Aðaltilgangur hátíðarinnar var að hittst, ræða málin, eiga góða stund saman og taka upp óformlegt spjall um arkitektúr og hönnun. Kaffihúsið gegndi þar lykilhlutverki. Stefnumót við húsgagna- og innanhússarkitekta var haldið á sunnudeginum. Kaffihúsinu var síðdegis á sunnudeginum formlega lokað með uppboði á Skötunni.
Viðburðir FÉLAGSINS voru mjög vel sóttir og telja menn að fleiri þúsund manns hafi lagt leið sína í FÉLAGIÐ þá daga sem Hönnunarmars stóð yfir. Almenn ánægja var bæði meðal fagfólks og leikmanna með þetta framtak og miklar væntingar eru bundnar um framhaldið.
Það er gífurlega mikil vinna sem liggur að baki viðburðum sem þessum og alveg ljóst að þeir hefðu aldrei orðið að veruleika nema með aðkomu fjölda manns sem unnið hafa í sjálfboðavinnu bæði dag og nótt. Öllum þeim er þakkað fyrir óeigingjarna vinnu í þágu FÉLAGSINS.
Verkefnisstjórar:
Dóra Hansen (verkefnastjóri FÍH)
Laufey Agnarsdóttir (verkefnisstjóri AÍ, löggan, slökkviliðið ofl.)
Þórhildur Þórhallsdóttir (verkefnisstjóri, allt í öllu fyrir FÍLA)
AÍ
Sigríður Maack (allt í öllu, leyfin og allir lausir endar)
Magnús jensson (kaffihúsið ofl.)
Kristján Örn Kjartansson (heimasíða, myndasjóv, uppsetning á dagskrá til prentunar, boðskort, ofl.)
Gunnar Örn Sigurðsson (skoðunarferðin)
Hildur Gunnlaugsdóttir (kom að fjáröflun)
Helga Sjöfn Guðjónsdóttir á skrifstofu AÍ sá um peningamál ofl.
FHÍ
Iva Rut Viðarsdóttir (kaffihúsið og fjáröflun, skrifa texta og margt fleira)
Oddgeir Þórðarson ( Kaffihúsið, hugmyndasmiður, redda húsgögnum, kaffi Tár og margt fleira)
Ásta Sigríður Ólafsdóttir (stjórnaði og skipulagði fjáröflun)
Ómar Sigurbergsson (sýningastjóri og smiður 10+)
Elísabet Ingvarsdóttir (stoð og stytta verkefnisstjóra og fyrir FHI í R.R..)
Elísabet Jónsdóttir (setti upp sýningaskrá 10+)
Helga Sigurbjarnardóttir (skúra skúbba og bóna )
LHÍ
Richard Blurton – .(sýningastjóri R.R.)
Nemendur LHI
Harpa Þórsdóttir, Elísabet Ingvarsdóttir
FÍLA
Dagný Bjarnadóttir (vinna við innsetningu)
Sif Hjaltadal Pálsdóttir
Björn Jóhannsson
Margrét Backman. (vinna við innsetningu)
Belinda Eir Engilbertsdóttir ( kaffihúsanefndin ofl.)
AÐRIR:
Efla ehf. (Aðstoð við brunahönnun og vegna leyfisveitinga)
Teiknistofan Tröð (fyrir umburðalyndi og lán á Laufeyju ofl.
Pétur Guðmundsson stjórnarformaður og eigandi Eyktar (húsnæði)
Styrkir í peningum og vörum:
Húsasmiðjan, Marel, Oddi, Álfaborg, Pixel, FSR, Epal, Hönnunarsafnið,
Steinsteypudagurinn 2010
Steinsteypufélagið minnir á Steinsteypudaginn 19. feb nk á Grand Hótel.
Boðið verður uppá þétta og góða dagskrá.(sjá nánar í viðhengi)
Þátttökugjald á Steinsteypudeginum 2010
1. 15.000 kr fyrir félagsmenn, þar er innifalin, glæsilegur
hádegismatur og ráðstefna í heilan dag (17.000 fyrir utanfélagsmenn).
2. 12.000 kr fyrir félagsmenn, ráðstefna í heilan dag án
hádegismatar (14.000 fyrir utanfélagsmenn).
3. 8.000 kr fyrir félagsmenn, ráðstefna í hálfan dag án
hádegismatar (10.000 fyrir utanfélagsmenn).
4. 3.000 kr fyrir nema, ráðstefna í heilan dag án hádegismatar.
5. 30.000 kr fyrir bás með einum skráðum, ráðstefna í heilan dag
(32.000 fyrir utanfélagsmenn).
Félagar í Arkitektafélagi Íslands fá afslátt sem félagsmenn,
vinsamlegast tilkynnið félagsaðild við skráningu.
Gögnin verður hægt að nálgast á rafrænu formi á heimasíðu
Steinsteypufélagsins að lokinni ráðstefnn.
Vinsamlegast hengið auglýsinguna upp í ykkar fyrirtæki og fjölmennið
á Steinsteypudag 2009.
Sjá einnig á heimasíðu félagsins www.steinsteypufelag.is
Skráning fyrir 18. febrúar með því að senda tölvupóst á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is.
Dagskrá Steinsteypudagisins í heild er að finna í meðfylgjandi skjali.
















