(Myndin sýnir Manfreð Vilhjálmsson sem hlaut heiðursverðlaun DV í fyrra / Ljósmynd: Sigtryggur Ari)
Senn líður að hinum árlegu Menningarverðlaunum DV.
Í flokki um byggingalist, verður tekið við tilnefningum fyrir mannvirki sem voru tekin í notkun á árinu 2010. Ennfremur verður tekið á móti tilnefningum fyrir sýningar, útgáfu, fræðistörf og annað sem þykir hafa aukið vegsemd arkitektúrs á Íslandi á nýliðnu ári. Eins og síðastliðið ár, má tilnefna öll mannvirki sem tekin voru í notkun á undanförnu ári, (tilnefningar eru ekki takmarkaðar við opinberar byggingar eða byggingar í almannaþágu eins og áður var).
Gert er ráð fyrir allt að 5 tilnefningum í hverjum flokki . Tilnefnd verk verða sérstkalega kynnt í DV. Verðlaunaafhending fer fram 2. mars.
Hér með er óskað eftir ábendingum um tilnefningar í arkitektúr ásamt upplýsingum um verkin s.s:
· staðsetningu verka
· lýsingu á forsendum og útfærslu
· nöfnum aðalhöfunda og tengiliða
· teikningum og ljósmyndum sem höfundar telja nauðsynlegar til að útskýra verk
· útgáfur, sýningar og aðrar upplýsingar verka eins og við á.
Dómnefnd skipa að þessu sinni arkitektarnir:
Sigrún Birgisdóttir sigrunbirgis@lhi.is
sími 8683497
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir frida@arkibullan.is
sími 8628955
Ólafur Axelsson olafur@vaarkitektar.is
sími 6635693
f.h. dómnefndar Sigrún Birgisdóttir

Heil og sæl verið þið.
Mér þykir líklegt að erindi mitt sé þegar til umhugsunar hjá ykkur, þ.e.a.s. ef ég met hlutina rétt. Erindið er að vekja athygli á bloggi Hilmar Þórs Björnssonar um Arkitektúr og skipulag. Eins og ég met það þá er þar á ferðinni alveg sérstakur og vandaður vetvangur, með menningarlegu sniði sem er í háum gæðum og skarar fram úr málflutningi í þessu tilliti. Mig langar því að mæla með að blogg Hilmars verði tekið til greina til menningarverðlauna DV 2011.
Bestu þakkir fyrir áheyrn og kærar kveðjur.
Björn hallsson
Ágætu kollegar og nefndarfólk !
Hilmar Þór Björnsson hefur verið ötull á vef sínum við að kynna góðan íslenskan og erlendan arkitektúr. Hann hefur líka bent á það sem miður fer. Þetta hefur hann gert af miklum menningaráhuga, með elju og ósérplægni. Arkitektúr-vefur hans hefur vakið verðskuldaða athygli og áhuga landsmanna og fjöldi manns hefur tekið þátt í umræðunni.
Almenningur hefur oft kvartað um tengslaleysi við arkitekta og að þeir lifi í sérheimi.
Hilmar hefur opnað þennan heim.
NB: Ég vil eindregið taka undir með Birni Hallssyni að benda á Hilmar til menningarverðlauna DV 2011.
Örnólfur Hall
Ég tek fyllilega undir orð nafna míns og Örnólfs.
Vefur Hilmars á Eyjunnu er svo sannarlega það ferskasta , sem komið hefur fram í fagi okkar á síðasta ári og það sem meira er komið umræðunni upp úr hjólförunum.
Þetta hljóta dómnefndartilnefningarmenn og menningarfömuðir
dagblaðsins DV að geta tekið undir og sýnt það í verki.
Björn H. Jóhannesson
Frábær hugmynd og tillaga frá Birni Halls. Ég held bara að vefsíðan hans Hilmars sé fyrsta og eina framlagið um arkitektúr og skipulag sem ég man eftir sem kalla mætti lifandi vettvang fyrir umræðu á þessu sviði. Og ekki bara það því Hilmar gerir þetta svo vel skrifar fínan og skýran texta án óþarfa málalenginga og velur fjölbrett innlent og erlent efni til að skrifa um. Besti vitnisburðurinn um hversu vel síðan hans er unnin er að umræðan sem fylgir í kjölfar greinanna er líka málefnaleg að langmestu leyti. Það þarf mikið til að svo sé og þannig hefur það ekki alltaf verioð meðal okkar í stéttinni.
Styð eindregið þessa hugmynd.
Kollegi Haukur A.Viktorsson hefur beðið mig að koma því að að hann styðji Hilmar Þór Björnsson eindregið til ofangreindra verðlauna.
Örnólfur
Vakandi yfir verkum arkitekta heima og heiman, vakandi yfir málefnalegri og menningarlegri umræðu um verk arkitekta hvar sem til þeirra sést, vakandi yfir virðingu og sanngirni og samviskusemi í störfum arkitekta, vakandi yfir skipulagi og skipulagsleysi í umhverfi hér heima og á öllum mögulegum og ómögulegum stöðum, vakandi yfir ábyrgð stéttarinnar og yfirvalda skipulags- og byggingarmála við mótun umhverfis okkar, vakandi yfir sjónarhornum, sem hversdagsleikinn vill draga slæðu yfir, – þannig eru pistlar Hilmars á blogginu, aldrei leiðinlegir, aldrei óviðkomandi, stundum nærgöngulir og gagnrýnir, alltaf fróðlegir og yfirleitt alltaf skemmtilegir, ekkert hefur komið fram seinustu árin í umræðu um fagið okkar sem hefur jafnmikla þýðingu fyrir jafnmarga og er unnið af jafnfáum og þó einum manni fyrst og fremst. Við viljum Hilmar!
Bloggsíða Hilmars Þórs á Eyjunni er fagleg, fróðleg og skemmtileg. Sú síbreytilega og kraftmiklla umræða, sem þar fer fram, er einstakt og ferskt innlegg í hérlenda umræðu um arkitektúr, skipulag og staðarprýði. Við styðjum tilnefningu hennar til Menningarverðlauna DV 2011.
Ég er mjög sammála þessari góðu tillögu og styð eindregið að Hilmar verði tilnefndur til menningaevwerðlauna.
Ég tek heilshugar undir tillögu Björns Hallssonar og orð kolleganna hér að ofan.
Ég tek eindregið undir við Björn Hallsson um að veita bloggsíðu Hilmars Þórs menningarverðlaun DV 2011. Nóg er að hitta Hilmar á förnum vegi til að sannfærast um að þar fer maður með sterkar lifandi taugar til samtímans.