
Samkeppni um hönnun nýbyggingar fyrir framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Framkvæmdasýsla ríkisins fh mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Mosfellsbæjar býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES
Um er að ræða uþb 4000 m² byggingu sem staðsett verður í miðbæ Mosfellsbæjar nánar tiltekið við Háholt. Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 13. janúar 2010.
Skiladagur tillagna er 10. mars 2010, fyrir kl. 16:00 hjá Ríkiskaupum.
Veitt verða þrenn verðlaun að heildarupphæð 8 m.kr.
Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is útboðsnúmer 14734. Einnig er hægt að nálgast samkeppnislýsinguna hér á PDF formi.
Samkeppnislýsing og ítargögn eru fáanleg á geisladiski, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500 kr. greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 8:00 – 16:00.