Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Háskóla Íslands býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Um er að ræða u.þ.b. 4000 m² byggingu, en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar, sem hýsa mun Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og er staðsett vestan Suðurgötu í Reykjavík. Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 19. janúar 2012 en því síðara 7. mars 2012. Skilafrestur tillagna er 22. mars 2012, fyrir kl. 16:00 hjá Ríkiskaupum. Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir kr. Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í janúar 2013 og að framkvæmdir hefjist í maí 2013 og þeim verði lokið í ágúst 2014.
Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.
Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, útboðsnúmer 15164. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500,- kr. greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga frá kl. 9:00 – 15:00.

Það eru gleðileg tíðindi í sjálfu sér að komið skuli að því að byggja yfir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Einnig er ánægjulegt að efnt skuli til opinnar samkeppni um hönnunina.Í því sambandi leyfi ég mér að vitna í Menningarstefnu í mannvirkjagerð – stefnu íslenskra stjórnvalda í byggingarlist sem samþykkt var 2007. Þar segir m.a. “Hönnunarsamkeppni hvetur til fjölbreytni, nýsköpunar og frumlegra lausna. Þær umræður sem eiga sér stað við dómnefndarstörf draga fram aðalatriði og skerpa áherslur verkefnis.”
Það hlýtur að vera ögrandi og spennandi verkefni að finna þeirri fjölþættu starfsemi umgjörð sem fyrirhuguð er í væntanlegri byggingu og vonandi verður líka þátttakan góð og margar metnaðarfullar tillögur sem berast.