Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að mikið hefur verið um að vera í samkeppnishaldi á vegum félagsins upp á síðkastið. Samkeppnismálin eru mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins og stjórn AÍ og samkeppnisnefnd hafa ákveðið að boða til fundar til að fara yfir það helsta sem á dagana hefur drifið, hver staða er og hvert stefnir í samkeppnismálum fimmtudaginn 7. júní klukkan 16:00 í Tjarnarbíói. Hægt verður að fá keyptar léttar veitingar við vægu verði á staðnum og Vilhjálmur Hjálmarsson arkitekt sýnir nýlega endurbyggingu hússins.
