(Mynd:1. verðlaunatillaga Hornsteina og Eflu)
Úrslit hönnunarsamkeppni um byggingu hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum.
Að mati dómnefndar varð tillaga Hornsteina arkitekta ehf og Eflu hf hlutskörpust í samkeppni um hönnun hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum. Í öðru sæti varð tillaga TARK Teiknistofu ehf, Verkfræðistofunnar Ferils, Verkhönnunar ehf, Vist og Veru og Verkfræðistofunnar Annar og í þriðja sæti varð tillaga THG Arkitekta ehf, Verkfræðistofu Austurlands,Verkfræðistofu Norðurlands, Eflu hf og Landark ehf.
Allar tillögurnar sjö er bárust verða til sýnis í Hlymsdölum á Egilsstöðum frá og með 5. júní og til og með 17. júní nk.
Tillögurnar munu síðar verða hengdar upp í sýningarsal 105 í Listaháskóla Íslands í Þverholti 11 og þar verður rýnifundur haldinn 22. júni klukkan 16:00.