Úrslit í Hönnunarsamkeppni um nýtt fangelsi á Hólmsheiði voru kynnt við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í gær (5.júní).
Fyrstu verðlaun í samkeppninni fékk tillagan frá arkitektastofunni Arkís. Höfundar hennar eru Björn Guðbrandsson og Arnar Þór Jónsson arkitektar og ráðgjafar Birgir Teitsson, Egill Guðmundsson og Friðrik Friðriksson arkitektar. Önnur verðlaun hlaut tillaga frá Arkitektur.is og þriðju verðlaun hlaut tillaga frá Teiknistofunni Tröð ehf.
