(Mynd frá örinnsetningum nemenda í arkitektur við Listaháskólann í Öskjuhlíð í vor.)
Nýr kafli í listnámi á Íslandi er að hefjast í haust þegar Listaháskóli Íslands býður upp á meistaranám í listum á þremur námsbrautum. Um er að ræða tveggja ára meistaranám í hönnun, myndlist og tónsmíðum. Vonir standa til að meistaranám í arkitektúr hefjist einnig áður en alangt um líður.
Sigrún Birgisdóttir arkitekt og Dóra Ísleifsdóttir grafískur hönnuður lektorar við LHÍ ræddu um meistaranámið í Víðsjá á Rás 1 í gær og hægt er að hlusta á viðtalið á vef Ríkisútvarpsins
http://www.ruv.is/frett/vidsja/nyr-kafli-i-sogu-lhi
.