Tveir rýnifundir samkeppna verða haldnir í þessari viku – viku 25.
Rýnifundur vegna Samkeppninnar um fangelsi á Hólmsheiði er haldinn í dag, 21. júní klukkan 17:00 á Háskólatorgi og á morgun, 22. júní verður rýnifundur vegna samkeppninnar um hjúkrunarheimili á Egilsstöðum á annari hæð í húsnæði Listaháskóla Íslands, hönnunar- og arkitektúrdeild í Þverholti 11 klukkan 12:00.
Samkeppnistillögur í samkeppninni um fangelsið á Hólmsheiði eru til sýnis á Háskólatorgi. (Sjá upplýsingar um dómnefndarniðurstöður á vef Framkvæmdasýslu ríkisins.)
Samkeppnistillögur í samkeppninni um hjúkrunarheimilið á Egilsstöðum hafa verið til sýnis á Egilsstöðumhanga nú uppi á annari hæð í húsnæði Listaháskóla Íslands, Hönnunar- og arkitektúrdeild í Þverholti 11.
