Félagið Háskólavellir í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efnir til hugmyndasamkeppni um heildaryfirbragð byggðar og bygginga á íbúðasvæði félagsins að Ásbrú í Reykjanesbæ.
Keppnislýsing- Ásabyggð á Ásbrú
Fyrirspurnafrestur er til 21.08.2015
Skilafrestur tillagna er 17.09.2015 kl 16.00
Keppnislýsing ásamt öðrum keppnisgögnum verða afhent gegn skilatryggingu að upphæð 5000 kr. Afhending keppnisgagna er á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Vonarstræti 4b milli kl 9.00-12.00 virka daga.
Einnig er hægt að fá keppnisgögn send rafrænt en þá þarf að senda tölvupóst á harh@mail.is
Væri ekki eðlilegt að greint væri frá því hvað hangir á spýtunni að samkeppni lokinni? Þá væri hægt að taka upplýsta ákvörðun (um þátttöku) byggir á væntum ávinningi? Mér finnst þetta ansi óljóst í keppnislýsingu.
Mér finnst það einnig sorglegt að þátttakendur þurfi að greiða skilagjald.