Heiðursfélagar
Alls hafa sex einstaklingar hlotið heiðursnafnbótina heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands. Aðeins tveir þeirra eru núlifandi, þ.e. Gísli Halldórsson arkitekt, sem kjörinn var heiðursfélagi árið 2002 og Högna Sigurðardóttir arkitekt sem var kosin heiðursfélagi árið 2008. Aðrir sem hlotið hafa þessa heiðursnafnbót eru Guðmundur Kr. Kristinsson, arkitekt, kjörinn heiðursfélagi 2001, Hörður Ágústsson listmálari og fræðimaður um byggingarlist, kjörinn heiðursfélagi 1992, Gunnlaugur Halldórsson, arkitekt, kjörinn heiðursfélagi 1969 og Sigurður Guðmundsson, arkitekt, sem varð heiðursfélagi Húsameistarafélagsins 1955.










