Minningarsjóður

Minningarsjóður Guðjóns Samúelssonar

Minningarsjóður prófessors dr. phil. Húsameistara Guðjóns Samúelssonar var stofnaður 24. nóvember 1990  í samræmi við erfðaskrá Guðjóns sem dagsett var 08.12.1948.

Í erfðaskrá Guðjóns er svo fyrir mælt að ákveðnum hluta eigna hans skuli varið til sjóðsmyndunar í nafni hans. Þar segir ennfremur að fyrstu tíu árin eftir andlát hans skuli sjóðurinn varðveittur í þáverandi kennslumálaráðuneyti en eftir það renna til Húsameistarafélags Íslands eða, ef það félag yrði lagt niður, í það félag sem stofnað yrði á sama grundvelli og meirihluti félagsmanna væri íslenskir húsameistarar.

Tilgangur sjóðsins er að útbreiða þekkingu á húsagerðarlist í íslenskum anda.

Minningarsjóðurinn hefur í þessu skyni veitt styrki annað hvert ár, frá árinu 1995.  Styrkveitingin fer fram í tengslum við afmælisdag Guðjóns Samúelssonar en hann var fæddur 16. apríl 1887 og dó 25 apríl 1950, fimm dögum eftir vígslu Þjóðleikhússins. Næsta styrkveiting er fyrirhuguð á árinu 2009.

Formaður stjórnar sjóðsins er Sigríður Magnúsdóttir, formaður AÍ. Aðrir í stjórn eru Guðmundur Gunnarsson, Sigurður Einarsson, Sigríður Sigþórsdóttir, öll félagar í AÍ og Ágúst Guðmundsson formaður BÍL, sem tilnefndur er af stjórn BÍL.

Skipulagsskrá Minningarsjóðs Guðjóns Samúelssonar
8. apríl 2009
Minningarsjóður dr. phil. húsameistara Guðjóns Samúelssonar auglýsir eftir umsóknum um styrkveitingar úr sjóðnum. Styrkir eru veittir annað hvert ár og fer styrkveiting fram í áttunda sinn þann 22. apríl 2009.
Styrkveitingar munu að þessu sinni nema 2.000.000 kr.
Umsóknir skulu vera á rafrænu formi og sendast á netfangið ai@ai.is eða til skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, 105 Reykjavík, merktar „Minningarsjóður“, eigi síðar en kl. 12.00 mánudaginn 6. apríl 2009.