Boðað er til aðalfundar Baklands Listaháskóla Íslands, þriðjudaginn 19.apríl n.k. kl 17:00 í sal LHÍ, norðanmegin á lóð Sölvhólsgötu.
Dagskrá:
A. Kynning á stefnumörkun LHÍ, sýn og markmiðum. Fríða Björk Ingvarsdóttir Rektor LHÍ .
B. Hefbundin aðalfundarstörf:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar Baklandsins fyrir liðið starfsár.
3. Skýrsla um starfsemi LHÍ. Stjórnarmenn Baklandsins í LHÍ
4. Kosning sjö stjórnarmanna sbr. gr. 3.2.
5. Breytingar á samþykktum.
6. Önnur mál.
a. Ákvörðun félagsgjalda.
Með fundarboði þessu fylgja núgildandi samþykktir fyrir Bakland LHÍ ásamt tillögum að breytingum á samþykktum sem liggja fyrir til samþykktar á fundinum.
Stjórn Baklandsins.