Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnis er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta og að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins og ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. tækjum og búnaði.
Sérstök áhersla er lögð á
- Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
- Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
- Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
- Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði
Umsóknarfrestur er til hádegis fimmtudaginn 8. september 2016
Frekari upplýsingar og rafræn eyðublöð má nálgast með því að smella hér. Einnig má senda beiðni um upplýsingar og aðstoð á netfangið hildur@nmi.is
(Sett á vef 18. ágúst 2016)