Hér eru fulltrúar Basalt og Design Group Italia á verðlaunaafhendingunni. Frá vinstri- Marcos Zotes, Carol Tayar, Hrólfur Cela, Perla Dís Kristinsdóttir, Daria Svirid, Sigríður Sigþórsdóttir, Sigurður Þorsteinsson og Carlo Casagrande.
Basalt og Design Group Italia hlutu í vikunni Best of the best í Red Dot hönnunarverðlaununum fyrir hönnun sína á The Retreat (hótel, spa og veitingastaður) í Bláa lóninu. Í hverjum flokki eru nokkur verkefni sem fá Red Dot verðlaunin en yfirleitt einungis eitt verkefni úr hverjum flokki fær verðlaunin Best of the Best. Í ár voru alls 1.5% af innsendum verkefnum sem fengu Best of the best viðurkenninguna.
Við óskum Basalt og Design Group Italia innilega til hamingju með frábæran árangur!
Hér má finna slóð á umfjöllun um Retreat og umsögn dómnefndar.