Málþing 24. nóvember, kl 13-18 Grand hótel
Loftgæði á heilbrigðisstofnunum, vinnustöðum og heimilum hafa verið í brennidepli að undanförnu og talsverðar umræður skapast um viðhald bygginga og þörf fyrir endurnýjun þeirra. Hönnun bygginga, efnisval, framkvæmd, viðhald og notkun hefur víðtæk og afgerandi áhrif á daglega líðan okkar, virkni og frammistöðu í leik og starfi. Það er brýnt að efla þverfaglegt samstarf fagaðila til að tryggja lífsgæði okkar og heilsu með hagkvæma nýtingu fjármagns að leiðarljósi.