Í tilefni af Alþjóðlegum degi arkitektúrs mánudaginn 7. október ætla félagsmenn í Arkitektafélagi Íslands að bjóða upp á göngur fyrir unga sem aldna um arkitektúr. Alþjóðlegur dagur arkitektúrs er haldinn alþjóðlega fyrsta mánudag í október ár hvert. Markmiðið með þessum degi er að vekja athygli almennings á hinu byggða umhverfi.
Allar göngurnar hefjast á sama tíma kl. 17:30.
Göngurnar sem farnar verða í ár eru:
Efstaleitið
Helgi Mar Hallgrímsson arkitekt og Ingvi Þorbjörnsson byggingarfræðingur hjá Arkþing/Nordic sem hönnuðu Efstaleitið að stórum hluta leiða göngu um hverfið. Gangan hefst í sýningarrými Skugga, Efstaleiti 27, þaðan verður gengið um svæðið og endað á að fara inn í eina íbúð.
Hverfisgata 40 til 44 – Brynjureitur
Guðmundur Gunnarsson arkitekt hjá Urban arkitektum og Guðrún Fanney Sigurðardóttir arkitekt leiða göngu um nýbyggingu að Hverfisgötu 40-44 sem þau hönnuðu. Hverfisgata 40-44 er hluti af Brynjureitnum svokölluðum, reit milli Laugavegs og Hverfisgötu. Gangan hefst fyrir framan Hverfisgötu 40.
Landakotstún og nágrenni
Sigríður Magnúsdóttir arkitekt leiðir göngu um Landakotstún og nágrenni og rýna í spor sögunnar. Gangan hefst við skrúðgarðinn á horni Garðastrætis og Túngötu.
Arnarnesvogur – Garðabæ
Orri Árnason arkitekt hjá Zeppelin arkitektum mun leiða göngu um veitingahús sem verið er að reisa um þessar mundir í Arnarnesvogi í Garðabæ og stefnt er að opni í nóvember næstkomandi. Húsið er byggt úr krosslímdum timbureiningum og er um 750 fermetrar að stærð. Gangan hefst framan við húsið, klukka 17:30 og verður það sýnt að utan og innan.
Helgugata og Skúlagata – Borgarfjörður
Sigursteinn Sigurðsson, arkitekt, leiðir göngu um Helgugötu og Skúlagötu. Á leiðinni verða verk eftir nafntoguðu arkitektana Halldór H. Jónsson, Sigvalda Thordarson og Guðjón Samúelsson skoðuð. Gangan hefst við Helgugötu 13.
Við hvetjum unga sem aldna til að mæta og njóta!