Hönnunarsjóður vekur athygli á að opið er fyrir umsóknir um næstu úthlutun. Þetta er önnur úthlutunin á þessu ári, en frestur til þess að sækja um styrk rennur út á miðnætti miðvikudaginn 11. apríl.
Í þessari atrennu er hægt að sækja um markaðs-, þróunar- og verkefnastyrk. Auk þess sem hægt er að sækja um ferðastyrki.
Dagsetningar fyrir úthlutnar ársins má finna á heimasíðu sjóðsins, en þar er jafnframt hægt að nálgast rafrænt umsóknareyðublað.
Smelltu hér til að sækja um!