Ertu arkitekt eða arkitektanemi og yngri en 35 ára? Ef já, hefur þú kost á því að sækja um í alþjóðlegu arkitektasamkeppninni Inspireli Awards 2017. Keppt er í tveimur flokkum 1) Sýn (óbyggt verkefni) og 2) Framkvæmd (verkefni sem þegar hefur verið byggt). Öll verkefnin sem send eru inn eru sýnileg í opnu galleríi á netinu. Kosning hefst 1. júlí 2017 og stendur til 30. nóvember 2017.