Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði – skráning er hafin

Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði – skráning er hafin

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010,  verður haldið í október – nóvember 2019 og verður námskeiðið í fjarkennslu. Opnað verður fyrir fyrirlestra mánudaginn 14. október og verða þeir opnir til 23. nóvember. Námskeiðinu lýkur með staðbundnu rafrænu prófi laugardaginn 23. nóvember 2019 (allar dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um breytingar).

Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.

Umsókn fer fram á vef IÐUNNAR- fræðsluseturs https://www.idan.is/ ásamt fylgigögnum eigi síðar en mánudaginn 7 október  2019.

Fylgigön eru:
1) afrit af prófskírteini umsækjanda
2) vottorð frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um réttindi til starfsheitis
3) vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um mannvirki
Nánari upplýsingar í síma 590 6434.