Arkitektafélag Íslands í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkitekta, Umhverfisráðuneytið
og Norræna húsið, heldur fyrirlestraröðina „Lýðheilsa og skipulag“.
Á HönnunarMarsi 2009 var haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur þriggja daga málþing sem bar sama heiti.
Vegna fjölda áskorana var ákveðið að endurtaka leikinn.
Að þessu sinni verður fyrirlestraröðin haldin í Norræna húsinu miðvikudagana 14., 21. og 28.apríl
kl. 17-19. Flutt verða um fimm stutt erindi hverju sinni.
Flytjendur næstkomandi miðvikudag eru : Arnar Þór Jónsson arkitekt, Þráinn Hauksson
landslagsarkitekt, Gestur Ólafsson arkitekt, Kristbjörg Traustadóttir landslagsarkitekt og
Orri Gunnarsson skipulagsfræðingur.
Hægt er að hala niður pdf skrá með dagskránni hér. .