Borgarstjórinn í Reykjavík býður til málþings um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík föstudaginn 13. október 2017. kl. 9 – 11 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Dregin verður upp heildstæð mynd af framkvæmdum og framkvæmdaáformum á húsnæðismarkaði í Reykjavík. Áhersla í kynningu borgarstjóra verður á samþykkt verkefni og framkvæmdir sem eru nýlega hafnar, en einnig verður gefin innsýn í verkefni á undirbúningsstigi.
Dagskrá:
kl. 8.30 – Létt morgunhressing
kl. 9.00 – Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
kl. 10.00 – Ýmis uppbyggingarverkefni:
- Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði: Staða og þróun á húsnæðismarkaði.
- Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt hjá umhverfis- og skipulagssviði: Úlfarsárdalur – uppbygging
- Sigurður Bessason, formaður Eflingar og varaforseti ASÍ: Leiguíbúðir á viðráðanlegu verði
- Sólveig Berg Emilsdóttir, arkitekt hjá Yrki: Íbúðir Bjargs við Móaveg
Fundarstjóri: Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.
Láttu Reykjavíkurborg vita af komu þinni á Facebook viðburði og gjarnan máttu deila honum með öðrum áhugasömum. Allir eru velkomnir!