Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2017 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009.
Starfslaun listamanna eru veitt úr sex sjóðum:
– launasjóður hönnuða
– launasjóður myndlistarmanna
– launasjóður rithöfunda
– launasjóður sviðslistafólks
– launasjóður tónlistarflytjenda
– launasjóður tónskálda
Umsóknir skiptast í eftirfarandi flokka:
• Starfslaun fyrir einn listamann í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð
• Starfslaun fyrir skilgreint samstarf listamanna í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð
• Starfslaun fyrir sviðslistahópa – athugið að sú breyting hefur verið gerð að sviðslistahópaumsókn er felld inn
í atvinnuleikhópaumsókn
Umsókn um starfslaun, lög og reglugerðir eru á vefslóðinni www.listamannalaun.is. Nota þarf íslykil / rafræn skilríki við umsóknina.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september, kl. 17.00.
(Sett á vef 18. ágúst 2016)