ÚTBOÐ:
Reykjavíkurborg óskar eftir umsóknum:
Gagnvirkt innkaupakerfi um þjónustu sérfræðinga í tilteknum skipulags-, byggingar-, samgöngu-, umhverfis- og veitumálum fyrir Reykjavíkurborg, EES útboð nr. 14344. Samningur komst á þann 27. janúar 2020 og gildir hann til 26. janúar 2024.
Opið er fyrir umsóknir að nýju.
Óskað er eftir aðilum til þátttöku í samningi um þjónustu sérfræðinga í tilfallandi verkefnum í skipulags-, byggingar-, samgöngu-, umhverfis- og veitumálum sem fram fer í gegnum gagnvirkt innkaupakerfi eins og það er skilgreint í 41. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Útboðsgögn eru eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Innkaupaskrifstofu. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 23:59 þann 26. janúar 2024.
14344 Gagnvirkt innkaupakerfi um þjónustu sérfr.í skipul-, bygg-, samg-, umhv-og veitum (1)